20.01.14 - 21:10
Ívan Guðjón Baldursson
Juan Agudelo lánaður til Utrecht (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Juan Agudelo mun spila fyrir hollenska efstudeildarfélagið Utrecht FC út tímabilið.
Agudelo er nýkominn til Stoke frá New England Revolution en getur ekki spilað vegna þess að hann fær ekki atvinnuleyfi á Bretlandi.
Agudelo er nýkominn til Stoke frá New England Revolution en getur ekki spilað vegna þess að hann fær ekki atvinnuleyfi á Bretlandi.
,,Ungur leikmaður eins og Agudelo þarf spilatíma og hann getur ekki gert það hjá Stoke eins og er svo þetta er gott tækifæri fyrir alla aðila,\" sagði Edwin de Kruijff, yfirmaður njósnaranets Utrecht.
Agudelo hefur gert góða hluti í Bandaríkjunum og er til dæmis yngsti leikmaðurinn til að skora fyrir landsliðið, aðeins 17 ára gamall í vináttulandsleik árið 2010.
Agudelo hefur gert góða hluti í Bandaríkjunum og er til dæmis yngsti leikmaðurinn til að skora fyrir landsliðið, aðeins 17 ára gamall í vináttulandsleik árið 2010.
Heimild: Sky Sports
