20.01.14 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Michel Bastos lánaður til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Michel Bastos hefur verið lánaður til AS Roma út tímabilið frá Al Ain, sem er besta liðið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Bastos getur spilað alls staðar á vinstri væng vallarins og þykir mjög góður bæði sem kantmaður og bakvörður.

Bastos var keyptur til Lille árið 2006 og fór þaðan til Lyon þremur árum síðar. Síðar var hann lánaður til Schalke, keyptur til Al Ain og nú er hann orðinn 30 ára gamall og kominn til Roma í ítölsku toppbaráttuna.
Hjá Lille lék Bastos undir stjórn Rudi Garcia, sem er nú þjálfari Roma og hefur komið mörgum á óvart eftir glæsilegan fyrri helming tímabils.
Bastos er annar leikmaðurinn sem kemur til Roma í janúarglugganum eftir komu Belgans efnilega Radja Nainggolan á láni frá Cagliari.
Roma borgar 1.1 milljón evra fyrir lánið og fær kauprétt á honum í sumar þar sem hann getur komið fyrir 3.5 milljónir aukalega.

Heimild: Soccerway