Fotbolti.net
20.01.16 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Donna Key Henry í Stjörnuna (Staðfest)

Donna Key Henry í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Stjarnan hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Donna Key Henry er kominn til Stjörnunnar eftir að hafa leikið með Selfyssingum í sumar.
Donna skoraði ellefu mörk í 21 leik í deild og bikar með Selfyssingum og var með betri leikmönnum liðsins.

Donna er 25 ára gömul en hún leikur í fremstu stöðunum á vellinum.

Stjarnan varð bikarmeistari í fyrrasumar eftir 2-1 sigur á Selfyssingum í úrslitaleik en Donna skoraði mark Selfoss þar.

Donna skoraði einnig gegn Stjörnunni í Pepsi-deildinni og Garðbæingar hafa nú fengið hana í sínar raðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.