20.01.16 - 20:03
Arnar Geir Halldórsson
Dýrasti leikmaður í sögu Leicester lánaður til Hoffenheim (Staðfest)

Kramaric langar á EM

Mynd: Getty Images

Kramaric langar á EM

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarliðið Leicester hefur lánað Andrej Kramaric til botnliðs þýsku úrvalsdeildarinnar, Hoffenheim en gengið var frá samningum þess efnis í dag.
Kramaric hefur ekki náð að festa sig í sessi á Englandi eftir að Leicester borgaði níu milljónir punda fyrir þennan króatíska framherja fyrir einu og hálfu ári síðan sem gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu Leicester.
Á þeim tíma var Kramaric talinn einn mest spennandi sóknarmaður Evrópu en hann sagðist sjálfur hafa hafnað Chelsea til að ganga í raðir Leicester.
Hann hefur lítið fengið að spila með Leicester í vetur þar sem Jamie Vardy, Shinji Okazaki og Leonardo Ulloa eru allir á undan Króatanum í goggunarröðinni.
„Andrej er með hugann við lokakeppni EM næsta sumar og það er mikilvægt fyrir hann að fá meiri spilatíma. Ég talaði við hann og við vorum sammála um að þetta væri góð lausn fyrir alla aðila. Við munum fylgjast náið með honum hjá Hoffenheim,\" segir Claudio Ranieri, stjóri Leicester.
Hoffenheim er í miklum vandræðum í Bundesligunni þar sem liðið er í neðsta sæti deildarinnar með þrettán stig eftir sautján umferðir en deildarkeppnin hefst að nýju um næstu helgi eftir vetrarfrí.