Fotbolti.net
20.01.16 - 14:22
Elvar Geir Magnússon

Ingvar Ásbjörn lánaður í Leikni (Staðfest)

Ingvar Ásbjörn lánaður í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Ásbjörn Ingvarsson hefur verið lánaður frá Íslandsmeisturum. FH til Leiknis. Hann hefur þegar fengið leikheimild með Leiknismönnum og spilar gegn ÍR í Reykjavíkurmótinu í kvöld.
Ingvar er tvítugur örvfættur miðju- og kantmaður sem er uppalinn hjá FH. Hann hefur ekki leikið fyrir FH í Íslandsmóti eða bikar.

Í fyrra lék hann með Fjarðabyggð í 1. deildinni á lánssamningi, spilaði sextán leiki og skoraði tvö mörk.

Leiknismenn féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra en Kristján Guðmundsson tók við þjálfun liðsins í haust.

Leiknir vann Fylki 2-0 á sunnudag í fyrsta leik sínum í Reykjavíkurmótinu en leikurinn gegn ÍR í kvöld fer fram í Egilshöll og hefst klukkan 19.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.