20.01.16 - 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Jose Peseiro ráðinn þjálfari Porto (Staðfest)

Peseiro er nýr þjálfari Porto.

Mynd: Getty Images

Peseiro er nýr þjálfari Porto.

Mynd: Getty Images
Portúgalska stórliðið Porto hefur staðfest ráðningu sína á Jose Peseiro sem þjálfara og skrifaði hann undir 18 mánaða samning.
Peseiro yfirgaf starf sitt sem þjálfari Al Ahly í Egyptalandi til að taka við Porto. Hann er arftaki Julen Lopetegui sem var rekinn þann 8. janúar.
Porto er í 3. sæti portúgölsku deildarinnar, fimm stigum frá toppliði Sporting, en miklar kröfur eru gerðar til liðsins.

Peseiro var áður aðstoðarþjálfari Real Madrid og hefur stýrt liðum Sporting, Braga og Panathinaikos á ferli sínum.