Fotbolti.net
20.01.16 - 08:00
Alexander Freyr Tamimi

Sampaoli hættir með landslið Síle (Staðfest)

Jorge Sampaoli er án starfs.

Jorge Sampaoli er án starfs.

Canon

Mynd: Getty Images

Jorge Sampaoli hefur sagt starfi sínu sem landsliðsþjálfari Síle lausu vegna ágreinings við nýkjörinn forseta þarlends knattspyrnusambands, Arturo Salah.

Sampaoli varð ósáttur eftir að fyrrum forsetinn Sergio Jadue sagði af sér í nóvember vegna ásakana um spillingu sem þjálfaranum var sjálfum blandað inn í.
Argentínumaðurinn reyndi þá án árangurs að semja um að rifta samningi sínum sem rennur út árið 2018 en Salah vildi halda honum. Sagði Sampaoli að sér liði eins og hann hefði verið tekinn í gíslingu og ítrekaði vilja sinn til að yfirgefa starfið.

Á endanum var samið um starfslok hans og er sögunni því lokið. Sampaoli skaust upp á stjörnuhimininn á árinu 2015 þegar hann gerði Síle afar óvænt að Suður-Ameríkumeisturum í fyrsta skiptið í sögunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.