Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. janúar 2020 12:24
Magnús Már Einarsson
Willems og Dummett ekki meira með á tímabilinu
Jetro Willems meiddist um helgina.
Jetro Willems meiddist um helgina.
Mynd: Getty Images
Varnarmennirnir Jetro Willems og Paul Dummett verða ekki meira með Newcastle á þessu tímabili.

Willems sleit krossband í 1-0 sigrinum á Chelsea um helgina.

„Hann hefur verið mjög góður með okkur og við munum sakna hans. Við óskum þess að hann eigi skjótan bata," sagði Steve Bruce stjóri Newcastle.

Dummett meiddist snemma leiks gegn Wolves um þarsíðustu helgi og tímabilið er líka búið hjá honum.

Newcastle er í 12. sæti í ensku úrvaldseildinni eftir sigurinn um helgina en mikil meiðsli hafa herjað á leikmannahóp liðsins að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner