Fotbolti.net
20.02.13 - 10:08
Magnús Már Einarsson

Eyjólfur Héðinsson til FC Midtjylland í sumar (Staðfest)

Eyjólfur Héðinsson til FC Midtjylland í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Eyjólfur Héðinsson, leikmaður SønderjyskE, hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning hjá FC Midtjylland.

Eyjólfur mun ganga í raðir Midtjylland þegar samningur hans hjá SønderjyskE rennur út í sumar.
,,Þetta er félag með marga góða leikmenn sem ég hlakka til að verða hluti af,\" sagði Eyjólfur á heimasíðu Midtjylland í morgun.

,,Ég hlakka mikið til félagaskiptanna en það er í sumar og það eru nokkrir mánuðir framundan hjá okkur í SønderjyskE. Ég einbeiti mér að því núna og þegar að tímabilinu er lokið hugsa ég um FC Midtjylland. Ég hlakka samt til að koma til félagsins í sumar.\"

Eyjólfur, sem er fæddur 1985, fór í atvinnumennsku árið 2006 þegar hann fór frá Fylki til GAIS í Svíþjóð. Árið 2011 gekk hann síðan í raðir SønderjyskE.

Midtjylland er í áttunda sæti í dönsku úrvalsdeildinni í augnablikinu, stigi á undan SønderjyskE.

Heimild: Heimasíða Midtjylland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.