20.02.14 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Sigurður Gunnar í Aftureldingu (Staðfest)

Sigurður Gunnar Sævarsson.

Mynd: Heimasíða Aftureldingar

Sigurður Gunnar Sævarsson.

Mynd: Heimasíða Aftureldingar
Afturelding í 2. deild hefur fengið til sín Sigurð Gunnar Sævarsson frá Reyni í Sandgerði.
Sigurður er 24 ára og er uppalinn hjá Víði í Garði en hann getur bæði spilað sem hægri og vinstri bakvörður.
Sigurður er 24 ára og er uppalinn hjá Víði í Garði en hann getur bæði spilað sem hægri og vinstri bakvörður.
„Hann á að baki leiki með Keflavík frá 2008-2010, sínu heimaliði Víði í Garði 2011, en síðustu tvö árin spilaði hann með Reyni í Sandgerði og var þar valinn besti maður liðsins í fyrra. Hann er útskrifaður með BS í íþrótta- og heilsufræði og er í meistaranámi núna á því sviði,\" segir á heimasíðu Aftureldingar.
Þá hefur sóknarmiðjumaðurinn Magnús Már Einarsson skrifað undir nýjan samning við Aftureldingu en hann er uppalinn hjá félaginu og hefur leikið með meistaraflokki síðan 2010.
Þá hefur sóknarmiðjumaðurinn Magnús Már Einarsson skrifað undir nýjan samning við Aftureldingu en hann er uppalinn hjá félaginu og hefur leikið með meistaraflokki síðan 2010.

Magnús Már Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
