Fotbolti.net
20.02.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Steinar Logi til Bergsoy (Staðfest)

Steinar Logi Þórðarson

Steinar Logi Þórðarson

Canon

Mynd: Heimasíða Bergsøy

Steinar Logi Þórðarson hefur gert samning við norska D-deildarliðið Bergsøy og mun leika með liðinu út þetta ár hið minnsta.
Steinar Logi er 23 ára gamall varnarmaður sem á 72 leiki að baki í deild og bikar fyrir Dalvík/Reyni og Draupni.

Steinar skoraði fjögur mörk í 18 leikjum fyrir Dalvík/Reyni sem féll úr 2.deildinni síðasta sumar og var valinn leikmaður ársins hjá Dalvíkingum.

D-deildin í Noregi er svæðaskipt þar sem leikið er í tólf riðlum en lið Bergsøy lenti í 10.sæti í sínum riðli á síðustu leiktíð.

Sveitungi Steinars, Sveinn Óli Birgisson, gekk til liðs við Bergsøy á dögunum en báðir fóru þeir í gegnum unglingastarf Þórs á Akureyri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.