Fotbolti.net
20.02.22 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Eysteinn Þorri í Hauka (Staðfest)

Eysteinn Þorri Björgvinsson.

Eysteinn Þorri Björgvinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Eysteinn Þorri Björgvinsson hefur skrifað undir samning við Hauka og mun leika með liðinu í sumar.
„Það er gleðiefni að Eysteinn hafi gengið til liðs við Hauka. Þetta er leikmaður sem býr yfir miklum hæfileikum og er fjölhæfur varnarmaður og getur svo sannarlega orðið frábær leikmaður fyrir Hauka," segir í tilkynningu frá félaginu.

„Knattspyrnudeild Hauka fagnar því að Eysteinn hafi gengið til liðs við liðið og taka slaginn í 2 deildinni á næstu leiktíð."

Eysteinn, sem er 22 ára, lék í yngri flokkum með Breiðabliki og Fjölni. Hann lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki með Fjölni í næst efstu deild sumarið 2019. Kom hans annar leikur einmitt í 1-5 sigri gegn Haukum á Ásvöllum.

Hann hefur einnig leikið með Fjarðabyggð og Þrótti Vogum á sínum ferli. Í fyrra kom hann við sögu í sex leikjum með Fjölni í Lengjudeildinni.

Fyrir helgi var sagt frá því að bakvörðurinn Oscar Borg væri búinn að semja við Hauka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.