Fotbolti.net
20.02.22 - 18:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jack Wilshere í AGF (Staðfest)

Mættur til Danmerkur.

Mættur til Danmerkur.

Canon

Mynd: AGF

Miðjumaðurinn Jack Wilshere er búinn að skrifa undir samning við danska úrvalsdeildarfélagið AGF. Samningurinn gildir út tímabilið og er möguleiki fyrir félagið að framlengja hann um eitt ár.
Jón Dagur Þorsteinsson og Mikael Neville Anderson leika með AGF og verður Wilshere því liðsfélagi tveggja íslenskra landsliðsmanna.

„Ég er á þeim stað á ferlinum þar sem ég þarf að byrja upp á nýtt eftir erfiðan tíma. AGF bauð mér það tækifæri. Ég er mjög þakklátur og mun reyna að hjálpa liðinu að taka skref fram á við," sagði Wilshere.

Hinn þrítugi ára gamli Wilshere hefur verið félagslaus frá því hann yfirgaf Bournemouth eftir síðasta tímabil.

Wilshere er fyrrum leikmaður Arsenal og West Ham. Hann var talin mikil vonarstjarna þegar hann kom upp hjá Arsenal, en meiðsli hafa haft mikil áhrif á þennan hæfileikaríka leikmann. Wilshere á að baki 34 A-landsleiki fyrir England.

Hann fær treyju númer tíu í Árósum; ljóst að þetta er eitt stærsta nafn sem hefur komið í danska fótboltann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.