20.03.13 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Robert Sandnes í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Robert Sandnes hefur gengið til liðs við Stjörnuna en hann hefur fengið leikheimild með liðinu.
Sandnes lék með Selfyssingum í fyrra en hann kom til Stjörnunnar á reynslu fyrr í vetur.

Logi Ólafsson, þjálfari Stjörnunnar, þekkir Sandnes eftir að hafa þjálfað leikmanninn hjá Selfyssingum í fyrra.
Hinn 21 árs gamli Sandnes var þá vinstri bakvörður auk þess sem hann lék á miðjunni.
,,Hans meginstaða var alltaf miðjumaður í þriggja manna miðju. Þar er hann að miklu leyti alinn upp. Hann er líka ágætis kantmaður og ágætis bakvörður,\" sagði Logi við Fótbolta.net á dögunum.