20.03.13 - 16:08
Magnús Már Einarsson
Samúel Kári og Tómas Ingi til Reading (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Reading

Mynd: Heimasíða Reading
Samúel Kári Friðjónsson úr Keflavík og Tómas Ingi Urbancic úr Víkingi R. hafa náð samkomulagi um að ganga til liðs við enska félagið Reading í sumar.
Báðir leikmennirnir munu æfa með Reading út þetta tímabil og skrifa síðan undir samning við félagið í sumar.
Báðir gera þeir tveggja ára samning við akademíu Reading auk þess sem Tómas mun fá eitt ár á atvinnumannasamningi hjá félaginu.
Leikmennirnir hafa báðir leikið með U17 ára landsliði Íslands en þeir eru báðir á sautjánda aldursári.
Samúel getur leikið á vörninni og miðjunni en Tómas leikur framarlega á miðjunni eða á kantinum.

Heimild: Heimasíða Reading