Fotbolti.net
20.03.14 - 15:25
Magnús Már Einarsson

Tómas fær Joð samþykkt (Staðfest)

Tómas fær Joð samþykkt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Tómas Joð Þorsteinsson, leikmaður Fylkis, hefur fengið millinafnið Joð formlega samþykkt hjá mannanafnanefnd.

,,Fínar fréttir að lenda frá mannanafnanefnd, millinafnið Joð samþykkt, carry on,\" sagði Tómas á Twitter í dag.

Tómas hefur notað Joð millinafnið í mörg ár en hann er sonur fjölmiðlamannsins Þorsteins J. Vilhjálmssonar. Nú hefur hann síðan fengið nafnið samþykkt hjá mannanafnanefnd.
„Pabbi byrjaði að nota Joð og ég fékk þetta þaðan. Ég held að þetta hafi byrjað þegar við bjuggum erlendis á mínum yngri árum. Síðan hef ég alltaf verið kallaður Tómas Joð,\" sagði Tómas við Vísi um málið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.