20.03.16 - 15:49
Arnar Geir Halldórsson
Howard til Colorado Rapids í sumar (Staðfest)

Að yfirgefa England eftir 13 ára veru

Mynd: Getty Images

Að yfirgefa England eftir 13 ára veru

Mynd: Getty Images
Bandaríski markvörðurinn Tim Howard er á heimleið og mun yfirgefa enska úrvalsdeildarliðið Everton eftir tíu ára dvöl á Goodison Park eftir þetta tímabil.
Þetta var staðfest á heimasíðu Everton í dag þar sem Howard greinir frá því að hann hafi samið við Colorado Rapids sem leikur í MLS deildinni.
„Ég verð stuðningsmaður Everton allt mit líf. Þetta verður alltaf mitt félag. Ég hef verið hjá Everton í 10 ár og þetta hefur verið frábær tími,\" er meðal þess sem segir í yfirlýsingu Howard.
Howard kom til Everton frá Manchester United sumarið 2006 en hann hefur leikið 392 leiki í ensku úrvalsdeildinni og haldið hreinu í 131 þeirra.
Hann hóf leiktíðina sem aðalmarkvörður Everton en hefur misst byrjunarliðssætið til Joel Robles og mátt gera sér að góðu að sitja á bekknum í síðustu átta leikjum.
Þessi 37 ára gamli markvörður er í miklum metum í heimalandinu en hann hefur leikið 106 landsleiki fyrir bandaríska A-landsliðið.

Heimild: Everton