Kveður Val með ró í hjarta - „Þetta var ógeðslega gaman"

Dóra María varð Íslandsmeistari fimm tímabil í röð með Val í lok fyrsta áratugs þessarar aldar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rútuferðirnar gerðu góða hluti fyrir hópinn.


Vann fjölda titla en þessi heiður sennilega sá stærsti af þeim öllum.

Mynd: Fótbolti.net

Landsleikirnir voru tæplega 120 og stórmótin tvö.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Endaði ferilinn á því að vera Íslandsmeistari og í liði ársins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann titilinn árið 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kveður félagið með það á góðum stað

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóra María varð Íslandsmeistari fimm tímabil í röð með Val í lok fyrsta áratugs þessarar aldar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sjá einnig:
Dóra María leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Verið að leita að rétta tímapunktinum
„Þetta er búið að liggja fyrir í smá tíma og ég hef undanfarin ár verið að reyna finna tímapunktinn til að hætta. Ég lét Pétur vita fljótlega eftir síðasta tímabil að gera ekki ráð fyrir mér. Hann leyfði mér að halda þessu opnu," sagði Dóra María.
„Það hefur verið erfitt að finna þennan tímapunkt til þess að hætta, það er alltaf eitthvað sem heldur í en mér fannst vera kominn tími á mig."
Skilur við liðið á góðum stað
Fréttaritari skaut þá inn í að hún hefði nú samt verið valin í lið ársins og lyfti Íslandsmeistaratitlinum í lok síðasta tímabils.
„Ég var ánægð með tímabilið í fyrra, það var ógeðslega gaman en mér finnst ég vera búin að rembast svolítið síðustu árin. Ég sleit krossband 2017 og er ekki búin að vera frábær í hnjánum síðan. Þetta hefur verið það gaman að ég hef hangið í þessu en mér fannst alveg skipta smá máli að enda þetta á góðum nótum."
„Ég tók mér hlé eftir tímabilið 2014 og á þeim tíma skildi ég við liðið á frekar erfiðum stað. Það var mikið af breytingum en núna er þetta svolítið öðruvísi. Liðið er á mjög góðum stað í dag."
„Við höldum nær öllu okkar liði, þjálfarinn er áfram og við búnar að bæta við okkur flottum mannskap. Þá eru leikmenn að koma til baka eftir barnsburð og meiðsli. Mér finnst auðvelt að vera bjartsýn á framhaldið hjá Val og ég get kvatt með smá ró í hjarta."
Skítin tilfinning
Er erfitt að segja frá því að þú sért hætt?
„Ég myndi alveg frekar vilja kalla þetta pásu," sagði Dóra María og hló. „Það er skrítið að tala um það og ég er ekki endilega farin að segja það mjög mikið upphátt. Þetta er skrítin tilfinning."
Æfðiru eitthvað með Val í vetur til að sjá hvort löngunin væri 100% til staðar?
„Nei, ég æfði ekkert með Val í vetur en ég fór á eina bumbuboltaæfingu, var alveg ofboðslega ryðguð í líkamanum og fann alveg að ég gat ekki farið í 120% tempó með Val."
Góður endir
Tímabilið í fyrra, er hægt að segja annað en að það hafi verið góður endir á ferlinum?
„Mér fannst þetta góður endir. Við áttum erfitt tímabil árið á undan, með öllum þessum Covid-leiðindum. Ég hugsaði alveg fyrir tímabilið 2020 að það hefði getað orðið síðasta tímabilið en síðan var það tímabil bara eins og það var."
„Tímabilið var skrítið, liðinu gekk ekki vel, covid-pásur og mig langaði til þess að halda áfram. Tímabilið í fyrra var að hluta til jafnt en svo í seinni hlutanum þá stingum við svolítið af og vinnum sannfærandi."
Rútuferðirnar norður góðar fyrir hópinn
Fannst þú einhvern sérstakan tímapunkt í fyrra þar sem allt small saman hjá Valsliðinu?
„Við eigum þetta hrottalega tap gegn Blikunum og lítum á það þannig að botninum hafi verið náð. Við spyrntum okkur svolítið vel frá botninum og töpuðum mjög fáum stigum eftir það."
„Eftir Blikaleikinn fórum við norður á Sauðárkrók og áttum mjög sannfærandi leik. Mér leið strax þá að trúin væri til staðar og hlutirnir smullu svolítið saman þar. Í kjölfarið fengum við góða leikmenn inn í glugganum og það hjálpaði til."
Það var talað um þessar rútuferðir norður, ferðina á Sauðárkrók og svo ferðina til Húsavíkur skömmu síðar, eins og lykilaugnablik á ykkar sumri. Upplifðir þú eitthvað sérstakt í þeim ferðum?
„Þetta er hlutur sem maður var kannski ekki mikið að pæla í en svo fór Pétur að tala um þetta í viðtölum. Þá opnaði það aðeins augun hjá manni fyrir því hvað þessar ferðir höfðu gert fyrir okkur."
„Að eyða tíma saman með hópnum gefur manni mikið, eins og í æfingaferð gerir þetta ótrúlega mikið. Í Covid var minna um svoleiðis en þarna vorum við á ferðalögum saman og ég held að samveran hafi gert okkur mjög gott."
Varð Íslandsmeistari fimm tímabil í röð
Horfiru til baka á ferilinn og sérð einhvern sérstakan hápunkt?
„Já, ég held að það sé erfitt að líta framhjá því þegar Valur var með yfirburðarlið. Árin 2006-2010 vinnum við fimm ár í röð, það voru mín bestu ár bæði með félagsliði og landsliðinu. Í heild sinni skilur ferillinn heilmikið eftir sig. Það væri hægt að nefna alls konar."
Hefði kannski mátt gefa atvinnumennskunni meiri séns
Dóra María lék með Djurgarden tímabilið 2011 og var svo í Brasilíu fyrri hluta árs 2012. Sérðu eftir því að hafa ekki verið lengur úti?
„Ferillinn erlendis byrjaði þegar ég fór í háskólaboltann í Bandaríkjunum sem mér fannst frábær tími, gaf mér ofboðslega mikið. En ég hefði kannski mátt gefa atvinnumennskunni aðeins meiri séns, fara jafnvel fyrr út því ég var orðin svolítið gömul þegar ég fór út til Svíþjóðar."
„Ég segi ekki endilega eftirsjá því maður tekur alltaf ákvörðun eftir því hvernig manni líður á þeim tíma. Eftir á litið hefði ég samt kannski mátt gefa því 1-2 tímabil í viðbót."
Voru möguleikar í stöðunni með það?
„Ég man ekki hvort það var beinlínis verið að kalla eftir mínum kröftum, ég hefði örugglega þurft að fara sjálf á stúfana. Það voru einhverjar þreifingar með lið í Noregi og á Spáni en þetta er orðið svo langt síðan, um tíu ár og ég man þetta ekki nógu vel," sagði Dóra María og hló.
„Ég hugsa að ég hefði alveg getað fundið mér lið ef ég hefði haft löngunina til þess þó að ég hafi ekki endilega verið að svara símtölum allan daginn."
Var komin með leiða og vildi fara gera eitthvað annað
Pásan sem þú tókst eftir tímabilið 2014, af hverju tókstu hana?
„Ég var komin með einhvern leiða, fannst ég vera búin að prófa allt. Ég var búin að vera í Bandaríkjunum, búin að fara í atvinnumennsku og búin að vinna deildina nokkur ár í röð. Þarna langaði mig að gera eitthvað allt annað í lífinu, var orðin svolítið þreytt á þessari skuldbindingu sem fótboltinn er."
„Ég vildi bara prófa eitthvað allt annað. Ég var þarna orðin þrítug þegar ég tók þá ákvörðun og fannst ég vera búin að toppa á mínum ferli. Ég sá aldrei fyrir mér að ég yrði svona gömul í fótbolta, það eru margir sem hafa stutt við mig í gegnum tíðina sem voru hissa að ég entist svona ofboðslega lengi í þessu."
Dóra María spilaði ekkert árið 2015 en kom til baka fyrir tímabilið 2016.
„Svo fannst mér freistandi að byrja aftur. Á þessum tíma sem ég hætti voru miklar breytingar á Valsliðinu, margar á mínum aldri voru farnar annað en svo voru einhverjar að koma til baka."
„Til dæmis Margrét Lára sem kom þarna 2016. Ég þekkti þjálfarann vel og fannst spennandi að taka þátt í þeirri vegferð sem Valur var eftir nokkur ár í lægð. Það átti að gefa í aftur og mér fannst það leiðinlegt að hafa ekki endað þetta á neinum sérstökum nótum. Liðinu gekk ekki frábærlega 2014 og jafn illa árið sem ég var ekki með."
Finnst hrikalega vænt um síðustu árin
Ertu ánægð með að hafa snúið aftur eftir pásuna?
„Já, það kostaði samt sitt - slitið krossband en það er mikill lærdómur að lenda í erfiðum meiðslum. Ég hafði verið mjög heppin fram að því. En j́ú, mér finnst alveg hrikalega vænt um þennan tíma í lok ferilsins, að fá að vera amman og vinna tvo titla á síðustu árum. Þetta var ógeðslega gaman og ég er þakklát fyrir það."
Ætlar að reyna njóta frelsisins
Hvað er það sem tekur við hjá Dóru Maríu?
„Góð spurning, ég held að það verði aðallega að njóta þess frelsis sem fylgir því að vera ekki í fótbolta. Maður getur gert eitthvað annað skemmtilegt á kvöldin, um helgar og á sumrin. Ég mun örugglega samt sakna þess að vera í boltanum en ætla að reyna njóta."
Ætlaru að vera í kringum Valsliðið eða verðuru upp í stúku að styðja liðið?
„Ég verð alveg örugglega eitthvað á vellinum en ég veit ekki hvort ég finni mér eitthvað hlutverk. Ég verð allavega stuðningsmaður númer eitt!" sagði Dóra María að lokum.

Rútuferðirnar gerðu góða hluti fyrir hópinn.


Vann fjölda titla en þessi heiður sennilega sá stærsti af þeim öllum.

Mynd: Fótbolti.net

Landsleikirnir voru tæplega 120 og stórmótin tvö.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Endaði ferilinn á því að vera Íslandsmeistari og í liði ársins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann titilinn árið 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kveður félagið með það á góðum stað

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
