Fotbolti.net
20.03.23 - 20:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skilur ekki af hverju White var ekki valinn - „Kemur að mörkum að vild"

Skilur ekki af hverju White var ekki valinn - „Kemur að mörkum að vild"
Canon

Mynd: Getty Images

Ben Foster fyrrum landsliðsmarkvörður Englands skilur ekkert í Gareth Southgate að hafa ekki valið Ben White í landsliðshóp Englands fyrir komandi verkefni.

England mætir Ítalíu og Úkraínu í undankeppni EM í vikunni en White er ekki í hópnum. Hann var rekinn úr hópnum á HM eftir að hafa lent í riflidi við starfsmann landsliðsins.

Foster telur að það liggi eitthvað meira að baki því að hann hafi ekki verið valinn í hópinn í þetta sinn.

„Hann er frábær í hverri viku, hann kemur að mörkum, kemur að stoðsendingum að vild. Hann er að spila mjög, mjög vel, Arsenal er á miklu flugi og þegar þú telur upp enska landsliðshópinn áttu að velja leikmenn sem eru í formi. Það sem gerðist á HM gerðist, ég er ekki með neitt slúður en það hefur eitthvað annað komið upp á," sagði Foster.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.