Fotbolti.net
20.04.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Sölvi Gylfason í Skallagrím (Staðfest)

Sölvi Gylfason er kominn aftur heim í Borgarnes

Sölvi Gylfason er kominn aftur heim í Borgarnes

Canon

Mynd: Sigga Leifs

Sölvi G. Gylfason hefur samið við Skallagrím, sem leikur í 4. deildinni í sumar, en hann verður spilandi aðstoðarþjálfari.
Sölvi, sem er 25 ára gamall, er uppalinn í Borgarnesi og snýr hann því aftur á heimaslóðir, en hann er mikill fengur fyrir heimamenn.

Hann hætti í BÍ/Bolungarvík á dögunum eftir tvö farsæl tímabil, en hann kemur til með að vinna í Borgarnesi og verður ásamt því spilandi aðstoðarþjálfari hjá Skallagrím í sumar.

Ásamt því að hafa leikið með Skallagrím og BÍ/Bolungarvík þá lék Sölvi með ÍA á Akranesi tímabilin 2008 og 2009. Þar lék hann 18 leiki, en með BÍ/Bolungarvík á hann að baki 31 leik og þrjú mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.