David Beckham, fyrrum leikmaður Manchester United og eigandi Inter Miami í Bandaríkjunum, hefur bæst í hóp þeirra sem gagnrýna fyrirhugaða Ofurdeild í Evrópu.
„Ég er maður sem elska fótbolta. Hann hefur verið líf mitt svo lengi sem ég man eftir mér. Ég elskaði fótbolta sem aðdáandi þegar ég var ungur og ég er ennþá aðdáandi í dag," sagði Beckham á Instagram.

„Sem leikmaður og núna eigandi þá veit ég að íþróttin okkar er ekkert án stuðningsmanna."
„Við þurfum að hafa fótboltann fyrir alla. Við þurfum að hafa fótboltann sanngjarnan og byggðan á eigin verðleikum."
„Ef við pössum ekki upp á gildi leiksins sem við elskum þá erum við í hættu."
Athugasemdir