Fotbolti.net
20.04.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emily Brett í Fylki (Staðfest)

Emily Brett í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir

Kvennaboltinn
Fylkir tilkynnti í gær um komu Emily Elizabeth Brett til félagsins. Hún skrifar undir eins árs samning við félagið.

Emily er 24 ára frá Bretlandi og spilar framarlega á miðjunni eða sem sóknarmaður. Síðustu 6 ár hefur Emily spilað með kvennaliði Barnsley, Loughborough Lightning og Huddersfield Town.
Með Barnsley skoraði hún sjö mörk í þrettán leikjum auk þess að skora fjórtán mörk í sex leikjum með Loughborough Lightning.

„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við leikmenn sem eru staðráðnir í því að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu og er frábær viðbót við okkar unga og efnilega lið," segir í tilkynningu Fylkis.

Fylkir spilar í Lengjudeildinni eftir fall á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.