Fotbolti.net
20.04.22 - 18:16
Brynjar Ingi Erluson

KF fær Dana og leikmann frá FH (Staðfest)

Daniel Kristiansen

Daniel Kristiansen

Canon

Mynd: KF

Daniel Kristiansen og Auðun Gauti Auðunsson eru gengnir til liðs við KF í 2. deild karla en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Daniel er 26 ára gamall miðjumaður og kemur frá Danmörku en hann ólst upp hjá Esbjerg þar sem hann varð meðal annars danskur meistari með U19 ára liðinu.

Hann spilaði þá í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í nokkur ár áður en hann hélt aftur til Danmerkur og samdi við Verde.

Daniel hefur verið á reynslu hjá KF síðustu vikur en hann flutti til Ólafsfjarðar með kærustu sinni í byrjun árs og hefur nú ákveðið að taka slaginn með liðinu í sumar.

Auðun er 19 ára gamall miðvörður og kemur til liðsins frá FH. Hann er uppalinn hjá félaginu en stígur nú sín fyrstu skref í meistaraflokki með KF.

Hann er sonur fyrrum landsliðsmannsins, Auðuns Helgasonar, en sá spilaði einmitt með Leiftri í efstu deild bæði 1996 og 1997.
Auðun Gauti Auðunsson

Auðun Gauti Auðunsson

Canon

Mynd: KF

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.