20.04.22 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skipp framlengir við Tottenham (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Oliver Skipp er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Tottenham en félagið staðfesti þetta á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu.
Skipp hefur verið í viðræðum við félagið að undanförnu. Skipp hefur verið fjarri góðu gamni frá því í lok janúar en það styttist í að hann snúi til baka á völlinn.
Skipp hefur verið í viðræðum við félagið að undanförnu. Skipp hefur verið fjarri góðu gamni frá því í lok janúar en það styttist í að hann snúi til baka á völlinn.
Skipp, sem verður 22 ára í haust, er miðjumaður sem uppalinn er hjá Tottenham. Hann á enn eftir að skora mark fyrir aðallið félagsins þrátt fyrir að hafa komið við sögu í 51 keppnisleik.
Á síðasta tímabili skoraði hann eitt mark þegar hann hjálpaði Norwich að vinna ensku Championship deildina en hann var hjá Kanarífuglunum á láni síðasta vetur.
Á síðasta tímabili skoraði hann eitt mark þegar hann hjálpaði Norwich að vinna ensku Championship deildina en hann var hjá Kanarífuglunum á láni síðasta vetur.
