Crystal Palace gerði markalaust jafntefli gegn West Ham á Selhurst Park í kvöld. Liðið er fimm stigum frá Evrópusæti.
„Mér leið eins og við hefðum getað unnið þennan leik. Við nýttum ekki svæðin sem þeir gáfu okkur. Við vörðumst vel svo ég hrósa liðinu fyrir það. West Ham ógnaði mest í föstum leikatriðum, hrós á West Ham fyrir varnarleikinn í teignum," sagði Glasner.
Crystal Palace mætir Liverpool um næstu helgi og síðan Shakhtar Donetsk í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar á fimmtudaginn í næstu viku.
„Leikmennirnir fá tvo daga í frí fyrir Liverpool leikinn svo byrjum við undirbúninginn. Við munum vera ferskir, það er nægur tími. Kannski þurfum við að rótera eftir fyrri leikinn (gegn Shakhtar). En svo framarlega sem leikmenn eru í formi munum við spila ferskustu leikmönnunum," sagði Glasner.




