20.05.14 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Alan Smith til Notts County (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Alan Smith hefur gengið til liðs við Notts County í ensku C-deildinni.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir eins árs samning við Notts County en hann kemur einnig inn í þjálfarateymi liðsins.

Smith var á árum áður í enska landsliðinu en hann lék með Leeds, Manchester United og Newcastle.
Undanfarin tvö tímabil hefur Smith spilað með MK Dons en hann leikur í dag í stöðu miðjumanns eftir að hafa fyrr á ferlinum verið framherji.