Fotbolti.net
20.05.14 - 13:46
Alexander Freyr Tamimi

Allardyce verður áfram með West Ham (Staðfest)

Stóri Sam fer hvergi.

Stóri Sam fer hvergi.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur staðfest að Sam Allardyce verður áfram knattspyrnustjóri liðsins.

Framtíð Allardyce var í mikilli óvissu, en eftir að hann fundaði með stjórn félagsins hefur verið ákveðið að hann fái að leiða liðið áfram á næstu leiktíð.
Félagið staðfesti það í yfirlýsingu á heimasíðu sinni að \"Stóri Sam\" muni áfram stýra skútunni.

,,West Ham United getur staðfest að knattspyrnustjórinn Sam Allardyce mun leiða liðið inn í ensku úrvalsdeildina tímabilið 2014/15 eftir uppbyggjandi viðræður við stjórn félagsins,\" sagði í yfirlýsingu Hamranna.

,,Stjórnin og Allardyce hafa átt langar og ítarlegar samræður um þá átt sem félagið vill fara í og hver hugmyndafræðin er. Eftir að hafa hlustað á stuðningsmennina hefur stjórnin krafist þess að liðið spili skemmtilegri fótbolta á næstu leiktíð.\"

Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.