Fotbolti.net
20.05.14 - 13:32
Alexander Freyr Tamimi

Claudio Ranieri hættur með Monaco (Staðfest)

Ranieri er hættur með Monaco.

Ranieri er hættur með Monaco.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska knattspyrnufélagið Monaco hefur staðfest að Claudio Ranieri er hættur sem þjálfari liðsins.

Vadim Vasilyev, varaforseti félagsins, staðfesti að Raneiri væri farinn frá félaginu og gaf í skyn að nýr þjálfari hefði verið fundinn.
,,Ég staðfesti að Claudio Ranieri er farinn frá félaginu. Við tókum þá ákvörðun sameiginlega að láta leiðir skilja,\" var haft eftir Vasilyev á Twitter síðu Monaco.

,,Ég myndi vilja þakka Raieri, sem vann virkilega gott starf. Þetta var mjög erfið ákvörðun.\"

,,Við trúum því að á þessum tímapunkti í verkefni okkar þurfum við að fá nýja stefnu. Ég get ekki staðfest nafn nýja þjálfarans, þar sem enn á eftir að ganga frá smáatriðunum.\"

,,Við ætlum að fá þjálfara sem spilar sóknarbolta og getur boðið stuðningsmönnum okkar upp á fallegan fótbolta.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.