20.05.16 - 16:07
Elvar Geir Magnússon
Brendan Rodgers nýr stjóri Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Skotlandsmeistara Celtic í Glasgow.
Hann tekur við Celtic af hinum norska Ronny Deila sem hefur stýrt skosku meisturunum undanfarin tvö ár.
Hinn 43 ára gamli Rodgers tók við Liverpool árið 2012 en hann hafði áður stýrt Swansea, Reading og Watford.

Celtic tilkynnti í dag að Rodgers hafi samþykkt tilboð félagsins en hann hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Liverpool í október í fyrra.
Celtic hefur alls orðið skoskur meistari 47 sinnum, þar af síðustu fimm tíumabil.
Celtic hefur alls orðið skoskur meistari 47 sinnum, þar af síðustu fimm tíumabil.
BREAKING NEWS: Celtic FC is delighted to announce that it has appointed Brendan Rodgers as the Club\'s new manager. pic.twitter.com/u2s2FwgChm
— Celtic Football Club (@celticfc) May 20, 2016