Fotbolti.net
20.05.16 - 07:15
Hafliði Breiðfjörð

ÍR fær þrjá leikmenn í kvennalið sitt (Staðfest)

Margrét Sveinsdóttir er komin til ÍR að nýju.

Margrét Sveinsdóttir er komin til ÍR að nýju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
ÍR fékk góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í 1. deild kvenna í sumar þegar þrír leikmenn gengu til liðs við félagið áður en félagaskiptaglugginn lokaði í vikunni.
Lilja Gunnarsdóttir og Halla Marinósdóttir gengu í raðir félagsins frá FH og og þá kom Margrét Sveinsdóttir frá Fylki.

Margrét hefur áður leikið með ÍR og hittir þar fyrir gamla liðsfélaga.

Guðmundur Guðjónsson þjálfar ÍR liðið sem vann sinn fyrsta deildarleik í sumar gegn Hvíta Riddaranum 5-0 og svo 2-1 sigur á Fram í Borgunarbikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.