20.05.16 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Markamaskínan Suleman aftur til Víkings Ó. (Staðfest)

Suleman hefur verið partur af landsliði Gana síðastliðin tvö ár og var í leikmannahóp Ganverja sem vann Afríkuleikana í fyrra.

Mynd: zimbio

Hin 25 ára gamla Samira Suleman er búin að skrifa undir þriggja mánaða lánssamning við Víking Ólafsvík.
Suleman er sóknarmaður sem gerði 10 mörk í 11 leikjum fyrir Ólafsvíkinga í fyrra.

Ásamt henni kemur varnarmaðurinn Janet Egyr sem er ári yngri, eða fædd 1992.
Báðar eru þær frá Gana og verða í Ólafsvík næstu þrjá mánuði. Þær voru í byrjunarliði Ólafsvíkur sem hafði betur gegn Fram með einu marki gegn engu í 1. umferð 1. deildar kvenna á þriðjudaginn.