Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. maí 2019 18:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið KR og HK: Óskar Örn í byrjunarliðinu
Óskar Örn byrjar hjá KR.
Óskar Örn byrjar hjá KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Börkur er í byrjunarliði HK-inga.
Ásgeir Börkur er í byrjunarliði HK-inga.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KR og HK eigast við í Vesturbænum klukkan 19:15 í Pepsi Max-deild karla. Fyrir leikinn er KR í sjöunda sæti með fimm stig og HK í tíunda sæti með fjögur stig.

Smelltu hérna til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.

KR tapaði í síðustu umferð gegn Grindavík 2-1. Rúnar Kristinsson gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá þeim leik. Arnþór Ingi Kristinsson, Kristinn Jónsson og Finnur Tómas Pálmason koma inn í byrjunarliðið fyrir Gunnar Þór Gunnarsson, Pablo Punyed og Atla Sigurjónsson.

Óskar Örn Hauksson byrjar hjá KR þrátt fyrir sögusagnir um að hann hafi handleggsbrotnað í síðasta leik.


Hjá HK kemur Ásgeir Börkur Ásgeirsson inn í byrjunarliðið fyrir Atla Arnarson. Annars er liðið óbreytt frá sigrinum gegn ÍBV í síðustu umferð.

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Björgvin Stefánsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
19. Kristinn Jónsson
20. Tobias Thomsen
22. Óskar Örn Hauksson (f)
25. Finnur Tómas Pálmason

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
3. Hörður Árnason
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Ásgeir Marteinsson
8. Máni Austmann Hilmarsson
9. Brynjar Jónasson
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
16. Emil Atlason
24. Björn Berg Bryde

Beinar textalýsingar:
19:15 KR - HK
19:15 FH - Valur
19:15 Grindavík - Fylkir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner