Miðjumaður Everton orðaður við Man Utd - Ramos til Liverpool?
   mán 20. maí 2019 20:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Sex mörk skoruð þegar Lazio og Bologna mættust
Lazio 3 - 3 Bologna
1-0 Joaquin Correa ('14 )
1-1 Andrea Poli ('50 )
1-2 Mattia Destro ('51 )
2-2 Bastos ('59 )
2-3 Riccardo Orsolini ('63 )
3-3 Sergej Milinkovic-Savic ('80 )

Næst síðustu umferðinni í ítölsku úrvalsdeildinni lauk í kvöld með frábærum leik Lazio og Bologna.

Nýkrýndir bikarmeistarar Lazio byrjuðu betur og komust yfir á 14. mínútu með marki Joaquin Correa. Það var eina mark fyrri hálfleiksins.

Í seinni hálfleiknum var skemmtanagildið aðeins meira. Miðjumaðurinn Andrea Poli, jafnaði fyrir Bologna á 50. mínútu og mínútu síðar kom Mattia Destro gestunum í Bologna yfir.

Varnarmaðurinn Bastos jafnaði aftur fyrir Lazio á 59. mínútu en stuttu síðar komst Bologna aftur yfir þegar Riccardo Orsolini skoraði.

Bologna náði ekki að landa sigrinum því miðjumaðurinn öflugi Sergej Milinkovic-Savic jafnaði metin þegar 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Það var síðasta markið í leiknum og niðurstaðan því 3-3 jafntefli.

Lazio er í áttunda sæti með 59 stig og getur hæst farið upp í sjöunda sæti. Lazio er nú þegar búið að tryggja sér sæti í Evrópudeildinni á næsta tímabili með því að vinna ítalska bikarinn. Bologna er í 12. sæti með 41 stig.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 15 11 0 4 34 14 +20 33
2 Milan 15 9 5 1 24 13 +11 32
3 Juventus 17 9 5 3 23 15 +8 32
4 Napoli 15 10 1 4 22 13 +9 31
5 Roma 16 10 0 6 17 10 +7 30
6 Como 16 7 6 3 22 12 +10 27
7 Bologna 15 7 4 4 23 13 +10 25
8 Lazio 17 6 6 5 18 12 +6 24
9 Atalanta 16 5 7 4 20 18 +2 22
10 Udinese 17 6 4 7 18 28 -10 22
11 Sassuolo 16 6 3 7 21 20 +1 21
12 Cremonese 16 5 6 5 18 18 0 21
13 Torino 17 5 5 7 17 28 -11 20
14 Cagliari 17 4 6 7 19 24 -5 18
15 Parma 16 4 5 7 11 18 -7 17
16 Lecce 16 4 4 8 11 22 -11 16
17 Genoa 16 3 5 8 16 24 -8 14
18 Verona 15 2 6 7 13 22 -9 12
19 Pisa 17 1 8 8 12 24 -12 11
20 Fiorentina 17 1 6 10 17 28 -11 9
Athugasemdir
banner