Fotbolti.net
20.05.21 - 22:10
Brynjar Ingi Erluson

Annar Brasilíumaður á leið til Man City

Man City er að kaupa efnilega leikmenn frá Brasilíu

Man City er að kaupa efnilega leikmenn frá Brasilíu

Canon

Mynd: EPA

Enska félagið Manchester City er að ganga frá samningnum við brasílíska táninginn Metinho en hann kemur til félagsins frá Fluminense. Fabrizio Romano, íþróttafréttamaður á Sky Italia, segir frá þessu á Twitter.
Þetta er annar leikmaðurinn á stuttum tíma sem City kaupir frá Fluminense en félagið keypti Kayky í síðasta mánuði og gengur hann formlega til liðs við City í janúar.

Metinho, sem er 18 ára gamall, hefur ekki enn spilað fyrir aðallið Fluminense.

Kaupverðið á honum eru 5 milljónir evra og gerir hann fimm ára samning við City.

Hann verður lánaður til Troyes í frönsku B-deildinni en franska félagið er líkt og Man City, í eigu City Football Group.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.