Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
banner
   fös 20. maí 2022 14:18
Elvar Geir Magnússon
Rangnick: Gæti tekið þrjá glugga en ég er bjartsýnn á að Man Utd snúi aftur á toppinn
Ralf Rangnick stýrir Manchester United í síðasta sinn þegar liðið heimsækir Crystal Palace á sunnudag. United er í sjötta sæti (Evrópudeildarsæti) en gæti fallið niður í það sjöunda (Sambandsdeildarsæti).

Á fundinum í dag sagðist Rangnick trúa því að það væru enn margir í liði United sem eru með gæðin til að spila fyrir Manchester United en segir nauðsynlegt að félagið fái þolinmæði til að styrkja liðið.

„Ég hef fulla trú á því að hér séu leikmenn sem eru nægilega góðir fyrir félagið. Þeir þurfa að vera með okkur næsta tímabil. Ef við fáum inn réttu mennina er ég bjartsýnn á að við náum að koma United aftur á toppinn," segir Rangnick.

„Það er kannski ekki mögulegt í einum félagaskiptaglugga en í næstu tveimur til þremur ætti það að vera hægt."

Rangnick fer í ráðgjafahlutverk þegar Erik ten Hag tekur við stjórnartaumunum. Rangnick segist hlakka til að hitta Ten Hag.

„Við höfum verið í sambandi gegnum WhatsApp. Vonandi fæ ég tækifæri til að hitta hann og spjalla við hann undir fjögur augu um helgina, eða í síðasta lagi á mánudag. Ég hlakka til að hitta hann og kynnast honum," segir Rangnick.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 15 10 1 4 35 16 +19 31
3 Aston Villa 15 9 3 3 22 15 +7 30
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 15 7 5 3 20 12 +8 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
8 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
9 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
10 Sunderland 15 6 5 4 18 17 +1 23
11 Tottenham 15 6 4 5 25 18 +7 22
12 Newcastle 15 6 4 5 21 19 +2 22
13 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
14 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
15 Brentford 15 6 1 8 21 24 -3 19
16 Leeds 15 4 3 8 19 29 -10 15
17 Nott. Forest 15 4 3 8 14 25 -11 15
18 West Ham 15 3 4 8 17 29 -12 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner