Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 20. júní 2019 13:00
Elvar Geir Magnússon
Marcos Llorente til Atletico Madrid (Staðfest)
Marcos Llorente.
Marcos Llorente.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid er að kaupa varnartengiliðinn Marcos Llorente frá grönnum sínum í Real Madrid.

Llorente hefur komist að samkomulagi um fimm ára samning.

Þessi 24 ára Spánverji hefur verið hjá Real síðan 2008 en lék eitt tímabil með Alaves á lánssamningi.

Hann hefur skorað tvö mörk í 39 leikjum fyrir aðallið Real en hann lék sextán leiki á síðasta tímabili.

Llorente er líklega hugsaður til að fylla skarð Rodri en Manchester City er í viðræðum um að kaupa hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner