Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. júní 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hafþór Þrastar í ÍH (Staðfest)
Hafþór lék með Haukum í fyrra.
Hafþór lék með Haukum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Hafþór Þrastarson hefur fengið félagaskipti frá Þrótti Vogum í ÍH, sem leikur í 4. deild.

Hinn þrítugi Hafþór á sextán leiki að baki í efstu deild og 117 leiki í næst efstu deild með FH, KA, Selfossi, Fram, Fjarðabyggð og Haukum.

Hann samdi við Þrótt Vogum fyrr á þessu ári, en stoppaði stutt þar. Hann hefur samið við ÍH og kemur hann til með að leika með liðinu í 4. deild í sumar.

ÍH er spáð góðu gengi í 4. deildinni í sumar. Liðið hóf leik með 2-1 sigri á Létti á fimmtudagskvöld þar sem fyrrum liðsfélagi Hafþórs í Haukum og FH, Brynjar Benediktsson, skoraði bæði mörkin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner