Fotbolti.net
20.06.26 - 14:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Staðfestir að hann sé á leið til Man Utd

Staðfestir að hann sé á leið til Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Ederson, miðjumaður Atalanta, hefur staðfest í samtali við Sky Sports að hann sé á leið til Man Utd.

Hann greinir frá því að það sé allt klappað og klárt, hann eigi bara eftir að skrifa undir samninginn.

Ederson er í landsliðshópi Brasilíu á HM og ætlar að einbeita sér að því áður en félagaskiptin ganga formlega í gegn. Man Utd borgar Atalanta um 45 milljónir evra.

„Ég verð að nýta þessa stund sem best. Ég er hér og þetta er dásamlegt, eitthvað sem maður verður alltaf að njóta til fulls," sagði Ederson um HM.

Ederson sat allan tíman á bekknum í 1-1 jafntefli Brasilíu gegn Marokkó í fyrstu umferð en hann kom inn á sem varamaður undir lokin í 3-0 sigri á Haítí í nótt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.