Fotbolti.net
20.07.13 - 12:00
Ívan Guðjón Baldursson

Andre Santos til Flamengo (Staðfest)

Andre Santos til Flamengo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur ákveðið að leyfa brasilíska vinstri bakverðinum Andre Santos að fara til Flamengo. Santos er 30 ára og var lánsmaður hjá Flamengo tímabilið 2005-06 og fær nú aftur að spila í treyju félagsins.

Santos skrifaði undir tveggja ára samning við Flamengo og kemur hann til félagsins frítt eftir að hafa verið keyptur til Arsenal á 7 milljónir punda fyrir tveimur árum.
Hann hefur leikið undir stjórn Mario Menezes, þjálfara Flamengo, áður og var í miklu uppáhaldi hjá Menezes í stöðu vinstri bakvarðar hjá brasilíska landsliðinu. Santos á 24 A-landsleiki að baki.

Santos kom til Arsenal frá Fenerbahce sumarið 2011 og lék sinn síðasta leik fyrir félagið gegn Liverpool í janúar á þessu ári, þar sem hann kom inn sem varamaður og var lánaður út til Gremio tæpum tveimur vikum síðar.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.