20.07.13 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Hinn fertugi Kevin Phillips til Crystal Palace (Staðfest)

Kevin Phillips verður líklega þriðji fertugi leikmaðurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni.

Mynd: Getty Images

Kevin Phillips verður fertugur 25. júlí og er búinn að skrifa undir eins árs samning við Crystal Palace, nýliða í ensku úrvalsdeildinni.
Phillips hefur sett mark sitt á úrvalsdeildina þar sem hann gerði garðinn frægan með Sunderland og á átta A-landsleiki að baki fyrir enska landsliðið.

Phillips var lánaður til Palace á síðasta tímabili og gekk vel svo félagið ákvað að fá hann til sín í annað tímabil.
Phillips skoraði sigurmark Palace í umspilinu um hvaða lið kæmist upp um deild ásamt tveimur efstu sætunum.
,,Ég er hæstánægður, ég naut mín hérna undir lok síðasta tímabils og vonaðist alltaf eftir því að fá annað tækifæri til að spila í deild þeirra bestu,\" sagði Phillips við vefsíðu félagsins.
,,Þetta er ótrúlegt fyrir mig en ég hlakka til og vona að ég fái að spila sem mest.\"
Phillips lék síðast í efstu deild á Englandi með Birmingham tímabilið 2010-11 og verður þriðji leikmaður sögunnar til að spila í úrvalsdeildinni eftir að hafa orðið 40 ára, en hinir tveir eru Teddy Sheringham og Gordon Strachan.

Heimild: Sporting Life