20.07.14 - 11:00
Grímur Már Þórólfsson
Casemiro til Porto (Staðfest)

Casemiro í leik með Real Madrid

Mynd: Getty Images

Casemiro í leik með Real Madrid

Mynd: Getty Images
Casemiro hefur gengið til liðs við Porto á láni út tímabilið frá Real Madrid. Þessi 22 ára gamli brasilíski miðjumaður gekk til liðs við Real Madrid í janúar 2013. Fyrir þá hvítklæddu hefur hann spilað 27 leiki í öllum keppnum en hann hefur aðallega þurft að sitja á bekknum.
Fjölmargar breytingar hafa orðið á liði Porto en liðið olli miklum vonbrigðum með því að lenda í 3. sæti í deildinni í fyrra.
Hefur liðið fengið til liðs við sig Adrián Lopes og Oliver Torres frá Atletico Madrid og þá Daniele Opare, Yacine Brahimi, Bruno Martins Indi og Christian Tello ásamt Casemiro.

Þá hafa leikmenn á borð við Fernando, Jorge Fucile, Juan Iturpe og Andre Castro farið frá félaginu og þá má fastlega búast við því að Elaquim Mangala fari til Man City og þá er Jackson Martinez einnig líklegur til að yfirgefa félagið.
Heimild: Soccernet