Mikið er um æfingaleiki þessa dagana enda fer tímabilið að byrja í öllum helstu deildum Evrópu og þurfa liðin að undirbúa sig fyrir átökin sem eru framundan.
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar sem var 0-1 undir gegn Ara Frey Skúlasyni og félögum þegar hætta þurfti leik vegna mikillar rigningar.
Íslendingaliðin Burnley, PAOK, Brentford og Millwall áttu öll leiki í dag. Burnley vann einn og tapaði einum á meðan Brentford gerði jafntefli. PAOK og Millwall unnu sína leiki.
Watford lagði þá Bayer Leverkusen að velli á meðan Crystal Palace tapaði fyrir Bromley.
AZ Alkmaar 0 - 1 Oostende
Sindri Guri ('45)
Leverkusen 1 - 2 Watford
0-1 Will Hughes ('35)
0-2 Andre Gray ('56)
1-2 Moussa Diaby ('66)
Valencia 0 - 1 Mónakó
0-1 L. Foster ('38)
Crewe 1 - 0 Burnley
1-0 C. Kirk ('22)
Port Vale 1 - 3 Burnley
1-0 T. Pope ('10)
1-1 Robbie Brady ('53)
1-2 Matej Vydra ('81)
1-3 Robbie Brady ('84)
Preston 1 - 3 Southampton
0-1 Danny ings ('13)
1-1 B. Bodin ('18)
1-2 Danny Ings ('44)
1-3 Jake Vokins ('82)
Bromley 1 - 0 Crystal Palace
1-0 J. Kizzi ('27)
St. Truiden 0 - 4 PAOK
Wycombe 2 - 2 Brentford
Hastings 1 - 2 Millwall
Lincoln 1 - 0 Reading
WS Wanderers 1 - 2 Leeds
Athugasemdir