Fotbolti.net
20.07.21 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Sassuolo fær Dragusin frá Juventus - Locatelli í hina áttina

Manuel Locatelli er á leið til Juventus

Manuel Locatelli er á leið til Juventus

Canon

Mynd: EPA

Rúmenski varnarmaðurinn Radu Dragusin mun ganga til liðs við Sassuolo frá Juventus á næstu dögum. Manuel Locatelli er þá nálægt því að semja við Juventus.
Dragusin er 19 ára gamall miðvörður en hann spilaði fjóra leiki með aðalliði Juventus á síðustu leiktíð.

Juventus hefur verið í viðræðum við Sassuolo um kaup á ítalska miðjumanninum Manuel Locatelli og er hann nú nálægt því að ganga í raðir félagsins. Tuttusport og fleiri miðlar á Ítalíu greina frá þessu.

Stórliðið bauð Sassuolo að fá Dragusin í skiptum fyrir Locatelli en Juventus borgar um 30 milljónir evra á milli.

Locatelli var magnaður með Ítalíu á Evrópumótinu og átti stóran þátt í að liðið vann mótið í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.