20.07.22 - 14:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH fær annan efnilegan markvörð á láni frá Val (Staðfest)

Aldís

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aldís

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur fengið Aldísi Guðlaugsdóttur á láni frá Val út tímabilið. Aldís er markvörður sem fædd er árið 2004 og kom til Vals frá Víkingi Ólafsvík árið 2019.
Hún lék með KH síðasta sumar og í vetur lék hún í tveimur leikjum með Val í Lengjubikarnum. Hún á alls að baki átta leiki fyrir yngri landsliðin, síðast tvo leiki með U18 gegn Finnlandi í síðasta mánuði.

Fyrri hluta tímabilsins var FH með annan efnilegan markvörð á láni frá Val. Það var Fanney Inga Birkisdóttir en hún er snúin til baka úr láni. Fanney er fædd árið 2005 og varði mark FH í fyrstu níu leikjunum í Lengjudeildinni. Fanney lék einnig með U18 landsliðinu gegn Finnlandi í síðasta mánuði og á alls átta leiki fyrir U16-U18.
FH er í toppsæti Lengjudeildarinnar eftir níu leiki, með 23 stig líkt og Tindastóll sem hefur leikið einum leik meira. Næsti leikur FH er á föstudag gegn Víkingi á útivelli.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er FH á að fá annan leikmann sem tilkynnt verður á næstunni. Það er Vigdís Edda Friðriksdóttir sem rifti samningi sínum við Þór/KA á dögunum.