Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 20. júlí 2022 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ivan frá Keflavík til Indlands (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ivan Kaliuzhnyi er genginn til liðs við Kerala Blasters FC í indversku Ofurdeildinni. Hann kemur á láni frá Oleksandriya í Úkraínu.

Ivan lék með Keflavík á láni í Bestu deildinni en samningurinn rann út í byrjun júlí mánaðar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari Keflavíkur hefði gjarnan viljað halda honum en hefði þurft að punga út milljón dollara.

Hann hafði heyrt af áhuga úr Ofurdeildinni.

„Ég hef heyrt að hann verði annað hvort áfram þar eða fara í Indversku Ofurdeildina sem væri auðvitað mjög gott fyrir hann fjárhagslega," sagði Siggi Raggi í samtali við Fótbolta.net á dögunum.

Guðjón Baldvinsson lék með Kerala á láni árið 2018 og lék 6 leiki og skoraði eitt mark. Kerala hafnaði í 4. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner