Fotbolti.net
20.07.22 - 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KF fær varnarsinnaðan miðjumann frá Svíþjóð (Staðfest)

KF fær varnarsinnaðan miðjumann frá Svíþjóð (Staðfest)
Canon

Mynd: Hönefoss

KF heldur áfram að styrkja sig fyrir baráttuna í 2. deild sem er rétt rúmlega hálfnuð.

Nýjasti leikmaður liðsins heitir Benjamin Omerovic og er hann fæddur í Bosníu en kemur frá Svíþjóð þar sem hann hefur verið frá sex ára aldri. Hann lék síðast með Assyriska í Svíþjóð.
Benjamin er 28 ára gamall og er varnarsinnaður miðjumaður. Hann var á reynslu hjá Þór skömmu fyrir gluggalok í maí en fékk ekki samning.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net býr yfir er Benjamin á leið í háskólanám á Akureyri.

KF, sem er í 9. sæti eftir tólf leiki, hefur einnig fengið Jordan Damachoua frá Þór í glugganum. Næsti leikur liðsins er gegn KFA á morgun.

<b> Ástríðan - 12. umferð </b> - Ólsarar vakna en þungt ský yfir Grafarvogi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.