Seferovic og Oliveira til Galatasaray (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tyrkneska stórveldið Galatasaray var að bæta tveimur öflugum leikmönnum við leikmannahópinn sinn fyrir komandi tímabil eftir hryllilegt gengi á síðustu leiktíð.
Galatasaray endaði óvænt í 13. sæti tyrknesku deildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa deilt toppsætinu með Besiktas í fyrra en tapað á eins marks mun í markatölu.
Haris Seferovic og Sergio Oliveira geta vonandi hjálpað til við að snúa þessu slæma gengi við. Seferovic kemur á eins árs lánssamningi frá Benfica á meðan Oliveira kemur frá Porto fyrir svo lítið sem þrjár milljónir evra.
Seferovic er þrítugur Svisslendingur sem hefur gert 74 mörk í 188 leikjum með Benfica auk þess að vera meðal leikjahæstu leikmanna landsliðsins. Hann gerði 5 mörk í 15 leikjum á síðustu leiktíð og vill fá meiri spiltíma. Hann á tvö ár eftir af samningnum við Benfica.
Oliveira er þrítugur miðjumaður sem stóð sig prýðilega á láni hjá Roma á síðustu leiktíð. Hann á 170 leiki að baki fyrir Porto og skoraði 20 mörk í 48 leikjum á sínu besta tímabili.
Oliveira var lykilmaður í yngri landsliðum Portúgala en hefur aðeins spilað þrettán A-landsleiki.
