Fotbolti.net
20.08.14 - 11:31
Magnús Már Einarsson

Federico Fernandez til Swansea (Staðfest)

Federico Fernandez.

Federico Fernandez.

Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur keypt argentínska landsliðsmanninn Federico Fernandez frá Napoli.

Talið er að Swansea muni borga átta milljónir punda fyfir Fernandez en hann var í liði Argentínu á HM í sumar.
Hinn 25 ára gamli Fernandez er miðvörður en hann var í láni hjá Getafe á síðasta tímabili.

Hjá Swansea er honum ætlað að fylla skarð Chico Flores sem fór til Katar á dögunum.

Fernandez mun líklega koma beint inn í leikmannahóp Swansea gegn Burnley á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.