20.08.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adna í Augnablik og Heidi í Fjarðab/Hött/Leikni (Staðfest)

Adna Mesetovic

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adna Mesetovic

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hið unga og efnilega lið Augnabliks hefur fengið góðan liðsstyrk því Adna Mesetovic er komin til félagsins frá Fjarðab/Hetti/Leikni.
Adna er sóknarþenkjandi leikmaður sem fædd er árið 1998. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún spilað í meistaraflokki frá 2013, eða þegar hún var á 15. aldursári.
Í sumar hefur hún skorað fjögur mörk í níu leikjum í deild og bikar fyrir Fjarðab/Hött/Leikni. Í fyrra skoraði hún fimm mörk í 12. leikjum í 2. deild kvenna.
Núna tekur hún stökkið upp í Lengjudeildina þar sem Augnablik situr í áttunda sæti deildarinnar.
Penninn hefur líka verið á lofti hjá Fjarðab/Hetti/Leikni sem hefur samið við Heidi Giles, varnarmann frá Kanada sem var í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Fjarðab/Höttur/Leiknir er í fjórða sæti 2. deildar kvenna.