Fotbolti.net
20.08.20 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Carson áfram á láni hjá Manchester City (Staðfest)

Carson áfram á láni hjá Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur fengið markvörðinn Scott Carson aftur á láni frá Derby.

Hinn 34 ára gamli Carson var á láni hjá City frá Derby á síðasta tímabili og verður áfram á láni á komandi tímabili.

Carson var þriðji markvörður City en hann hefur ekki ennþá leikið leik með aðalliði félagsins.
Varamarkvörðurinn Claudio Bravo er farinn frá Manchester City en líklegt þykir að Zack Steffen verði varamarkvörður á komandi tímabili.

Steffen er Bandaríkjamaður en hann var á láni hjá Fortuna Dusseldorf í Þýskalandi á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.